Fasteignakerfið er heildarkerfi á netinu fyrir umsjón
og rekstur fasteigna. Þar má skrá og geyma allar upplýsingar sem varða
fasteignina í texta, myndum eða á PDF-formi, fletta þeim upp og prenta þær
út. Leiðbeiningar sem birtast við notkun fasteignakerfisins, leiða notandann
skref fyrir skref í gegnum kerfið og vísa honum á hvað gera skuli á hverjum
stað í kerfinu og nákvæmari útskýringar og forskriftir má finna í kerfinu
þannig að allir geti notað það, bæði þeir sem kunna meira og minna.